Um makaleit.is
Vefurinn Makaleit.is var opnaður á Valentínusardaginn 14. febrúar 2005.
Makaleit.is er fyrir fólk sem er alvara með að finna sér lífsförunaut eða
félaga og er EKKI vettvangur fyrir gift fólk í leit að viðhaldi.
Frá upphafi hefur verið lagður metnaður í að yfirfara hvern einasta prófíl við
skráningu og einnig í hvert sinn sem prófíl er breytt, til þess að koma í veg
fyrir misnotkun eða önnur óheilindi á vefsíðunni. Skráningar sem innihalda
óviðeigandi orðbragð eða kynlífslýsingar eru ekki samþykktar.
Þar sem netið er opinber vettvangur, finnst okkur lágmarks kurteisi að
tryggja að börnin okkar rambi ekki inn á efni og lýsingar sem ekki hæfa aldri.
Skráðir notendur geta fljótt fundið einhvern við sitt hæfi. Einstakling sem
hefur sömu áhugamál eða á eitthvað sameiginlegt með þeim atriðum sem hægt er að
bera saman og leita eftir.
Úr umfjöllun um Makaleit.is í Fréttablaðinu 14. febrúar 2005
"Hann er liðinn tíminn þegar menn freistuðu þess mestmegnis að verða fyrir
skotum Amors á skemmtistöðum landsins; oftar en ekki í reykjarsvælu og
félagsskap Bakkusar. Asinn í nútímaþjóðfélagi gerir svo mönnum erfiðara um vik
að kynnast ástinni við kjötborðið í Hagkaup eða hraðferðinni á bókasafnið. Að
því leyti er netið Guðs gjöf, en æ fleiri hafa fundið sálufélaga og varanlega
ást á stefnumótavefjum landsins. Á dögunum opnaði sá nýjasti; Makaleit.is,
stefnumótavefur fyrir þá sem er full alvara í leit sinni að ást og hamingju."
Úr umfjöllun um Makaleit.is í Blaðinu 3. júní 2005
"Vefurinn einkamal.is hefur notið mikilla vinsælda, ásamt private.is.
Þessir vefir endurspegla mannlífið að því leyti að þar kennir ýmissa grasa en
vissulega er misjafn sauður í mörgu fé. Nú er kominn nýr vefur inn
á þennan markað á Íslandi, sem er öðruvísi að mörgu leyti -
www.makaleit.is. Á makaleit.is eru
allar notendaumsóknir síaðar og allt ritskoðað. Klám og óþverraskapur er
einfaldlega ekki liðinn."
Makaleit.is er í eigu Netreksturs ehf.
Auglýsingar
Hafir þú áhuga á að auglýsa á vefnum með einum eða öðrum hætti þá getur þú
sent fyrirspurn í tölvupósti á
makaleit@makaleit.is
Upplýsingar
Rekstur vefsvæðis:
Netrekstur ehf.
PO BOX 5437
125 Reykjavík
Kt.: 550705-0790
VSK-númer 87201
Vefslóð: www.makaleit.is
makaleit@makaleit.is
Fyrirtækið er skráð hjá
hlutafélagaskrá.
|