Notkunarskilmálar
Með skráningu í kerfið samþykkir notandi eftirfarndi notkunarskilmála:
- IP vistafang notenda eru geymd af öryggisástæðum. Ef upp koma mál vegna
misnotkunar á aðgangi á makaleit.is þá er hægt að rekja skráningu til þess
einstaklings sem ber ábyrgð á þeirri IP tölu. Þessar upplýsingar eru aðeins
gefnar upp gegn úrskurði dómsvalda.
- Notandi er persónulega ábyrgur fyrir öllu efni sem hann birtir á vefnum og
öllum skilaboðum sem hann sendir. Makaleit.is getur ekki undir neinum
kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda.
- Börnum undir 18 ára aldri er óheimill aðgangur að allri þjónustu
makaleit.is.
- Það er stranglega bannað að bjóða vöru eða þjónustu sem íslensk löggjöf
bannar, t.d. vændi, ólögleg vímuefni eða ólöglegt klámefni.
- Makaleit.is áskilur sér rétt til að grípa inn í vegna kvartana undan
stöðugu áreiti eða óþægindum af völdum annarra notenda.
- Ef upp koma lögreglumál í tengslum við misnotkun vefsins, t.d. vegna brota
á friðhelgi einkalífs eða veitingar ólöglegrar vöru eða þjónustu, áskilur
Makaleit.is sér fullan rétt til að aðstoða yfirvöld.
- Myndbirtingar eru val hvers og eins notanda. Myndir verða að vera af
notandanum sem sendir hana inn, hún má ekki sýna annað fólk en notandann
sjálfan, hún má ekki vera hreyfimynd, nektar- eða klámmynd.
- Makaleit.is skuldbindur sig til að gefa ekki netföng til þriðja aðila og
skoða ekki nein samskipti milli notenda, nema dómsúrskurður eða fullt samþykki
viðtakanda liggi fyrir.
- Með því að skrá sig sem notanda í kerfið lýsir notandi því yfir að hann sé
18 ára eða eldri og samþykkir að hlíta notkunarskilmálunum.
|