Hvernig nota ég vefinn?
Óskráðir notendur
Óskráðir notendur geta notað hraðleitina og séð yfirlit yfir þá prófíla sem eru
sýnilegir.
Til að skoða prófíla þurfa notendur að skrá sig inn í kerfið.
Skráðir notendur
Allir notendur sem skrá sig inn í kerfið fá sjálfkrafa fría áskrift og geta
framkvæmt eftirfarandi:
- Skráð prófíl með mynd
- Notað hraðleit
- Skoðað aðra prófíla
- Sett prófíla í uppáhald
- Sent skilaboð til aðra
Til að skrá þig, smellir þú á hnappinn
nýskráning og fyllir í alla reiti. Þegar því er lokið, fer skráningin
í samþykktarferli. Þegar grunnskráningin hefur verið samþykkt getur
þú skráð þig inn með aðgangs- og lykilorðinu og sett saman persónulýsinguna þína
þannig að aðrir geti haft samband við þig. Þegar prófíllinn er tilbúinn
fer hann í samþykktarferli hjá makaleit.is. Þegar hann er samþykktur verður hann
virkur og sýnilegur öllum skráðum notendum.
Prófílnum er skipt í 3 liði sem hvern er hægt að uppfæra sér og birtist
tengillinn "Breyta" fyrir neðan hvern lið.
Prófíllinn fer ekki í samþykktarferli þegar upplýsingum er breytt undir liðnum
"Prófíll" þar sem um er að ræða fyrirfram skilgreinda möguleika sem valið er úr.
Prófíllinn fer hins vegar aftur í samþykktarferli þegar lýsing er skráð undir
liðnum "Um mig" og einnig ef þeirri lýsingu eða notendaupplýsingum er breytt
aftur.
Keypt áskrift
Með keyptri áskrift geta notendur:
- Framkvæmt allt sem er í frí áskriftinni
- Sett inn allt að 5 myndir
- Framkvæmt ítarlega leit
- Vistað leit
- Sent og móttekið skilaboð
- Notað spjallkerfið
Ath. í apríl fá allir notendur sjálfkrafa fullan aðgang við skráningu.
|