Vertu á varðbergi ef beðið er um peninga
Ef einhver sem þú þekkir lítið biður þig um peninga, lán eða gjafakort er rétt að fara mjög varlega. Ekki senda peninga fyrr en þú hefur sannreynt hver viðkomandi er.
Ekki flýta þér að færa spjallið annað
Það er öruggast að halda samskiptunum inni á Makaleit þar til þú þekkir viðkomandi betur. Vertu sérstaklega varkár ef þrýst er á þig að fara strax yfir á WhatsApp, Telegram eða annan samskiptamiðil.
Deildu aldrei bankaupplýsingum
Gefðu aldrei öðrum upp kortaupplýsingar, bankaupplýsingar, PIN-númer eða aðgangsupplýsingar. Traust manneskja ætti ekki að biðja þig um slíkar upplýsingar.
Varastu beiðnir tengdar rafrænum skilríkjum
Deildu aldrei auðkenningarkóðum eða samþykktu innskráningu fyrir aðra með rafrænum skilríkjum. Á Makaleit er rafræn auðkenning aðeins notuð til að staðfesta aldur og kyn notanda.
Leitaðu að auðkenningarmerkinu
Notendur sem hafa auðkennt sig með rafrænum skilríkjum fá sérstakt auðkenningarmerki á prófílinn sinn. Það staðfestir að upplýsingar um aldur og kyn hafa verið sannreyndar.
Skyndileg neyð getur verið viðvörunarmerki
Vertu varkár ef einhver segist skyndilega hafa veikst, lent í slysi eða vera fastur erlendis og biður þig um fjárhagsaðstoð. Slíkar sögur eru algengar í netsvikum.
Taktu eftir ef sagan breytist
Ef upplýsingar um vinnu, fjölskyldu, búsetu eða aðstæður breytast ítrekað er eðlilegt að spyrja nánar. Ósamræmi í frásögn getur verið ástæða til að staldra við.
Mjög sterkar tilfinningar strax?
Farðu rólega ef einhver lýsir yfir ást eða mjög sterkum tilfinningum eftir stutt kynni. Traust og náin tengsl byggjast yfirleitt upp smám saman.
Láttu ekki setja þig undir þrýsting
Ef einhver reynir að fá þig til að taka skjóta ákvörðun, halda einhverju leyndu eða bregðast strax við er gott að hægja á samskiptunum. Þú átt alltaf rétt á að taka þér tíma.
Prófílmynd sannar ekki alltaf hver viðkomandi er
Þótt allar prófílmyndir á Makaleit séu yfirfarnar og samþykktar af starfsfólki áður en þær birtast geta myndir verið stolnar eða gefið ranga mynd af einstaklingi. Gefðu þér því tíma til að kynnast viðkomandi vel.
Tilkynntu grunsamlega eða óviðeigandi hegðun
Láttu Makaleit vita ef þú færð grunsamleg, ógnandi eða óviðeigandi skilaboð. Tilkynningar hjálpa okkur að halda samfélaginu öruggara fyrir alla. Við skoðum allar tilkynningar og grípum til viðeigandi aðgerða.
Treystu en gefðu þér tíma
Makaleit leggur áherslu á öruggt umhverfi. Starfsfólk samþykkir allar prófílmyndir og prófíltexta áður en þeir birtast og notendur geta auðkennt sig með rafrænum skilríkjum. Gefðu þér samt alltaf tíma til að kynnast nýju fólki.