Makaleit.is
Makaleit.is
Valmynd
Um Makaleit
Almennar upplýsingar
Frásagnir notenda
Umfjöllun fjölmiðla
Verðskrá
Skilmálar
Örugg stefnumót
Spurningar og svör
Hafa samband
Skrá nýjan notanda
Innskráning
Fleiri tenglar neðst...
"Ég fann frábæran mann á þessu fyrsta deiti." ...
fleiri frásagnir
Skilmálar
Allir notendur hafa samþykkt þessa notkunarskilmála.
Þegar talað er um Makaleit.is er átt við rekstraraðila vefsins.
Makaleit.is er stefnumótavefur fyrir fólk sem leitar að alvarlegu sambandi. Vefinn má ekki nota til að auglýsa skyndikynni eða aðra þjónustu sem tengist ekki tilgangi hans. Við skráningu staðfestir notandi að hann sé ekki í föstu sambandi.
Allar myndir eru yfirfarnar áður en þær birtast. Makaleit.is áskilur sér rétt til að hafna myndum sem uppfylla ekki skilyrði vefsins. Andlitsmynd skal sýna notandann sjálfan, andlit þarf að sjást skýrt og myndin má ekki sýna annað fólk. Nektarmyndir eru bannaðar.
Óviðeigandi eða móðgandi orðalag er ekki leyfilegt.
Það kostar ekkert að skrá sig og prófa Makaleit.is. Til að geta lesið og sent skilaboð þarf áskrift, sjá
verðskrá
.
Einstaklingum yngri en 18 ára er óheimill aðgangur að vefnum. Við skráningu staðfestir notandi að hann hafi náð 18 ára aldri.
Óheimilt er að villa á sér heimildir, til dæmis með því að gefa upp rangt kyn, aldur eða aðrar upplýsingar um sjálfan sig.
Allir prófíltextar eru yfirfarnir áður en þeir birtast. Makaleit.is áskilur sér rétt til að hafna texta sem uppfyllir ekki skilyrði vefsins. Ekki má birta símanúmer, netfang eða heimilisfang í prófíltexta. Slíkar upplýsingar má senda í einkaskilaboðum.
Notendum ber að sýna hver öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum. Hver notandi ber sjálfur ábyrgð á því efni sem hann birtir og þeim skilaboðum sem hann sendir. Makaleit.is ber ekki ábyrgð á orðum eða athöfnum notenda.
Makaleit.is skoðar ekki samskipti notenda nema rökstuddur grunur sé um misnotkun eða brot á skilmálum.
Ef notandi sendir öðrum notanda vinabeiðni eða önnur samskipti sér móttakandinn andlitsmynd, aldur og stað sendanda. Móttakandi hefur allt að 30 daga til að svara vinabeiðni.
Óheimilt er að auglýsa eða stunda kaup og sölu á þjónustu sem brýtur gegn íslenskum lögum. Ef misnotkun leiðir til rannsóknar lögreglu áskilur Makaleit.is sér rétt til að afhenda lögreglu nauðsynleg gögn samkvæmt gildandi lögum. Að öðru leyti eru notendaupplýsingar ekki afhentar þriðja aðila.
Makaleit.is getur lokað tafarlaust á notendur sem brjóta þessa skilmála. Áskriftargreiðslur eru ekki endurgreiddar við slíka lokun.
Makaleit.is áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum án fyrirvara.
Þessir skilmálar tóku gildi 1. janúar 2013 og gilda þar til ný útgáfa þeirra tekur við.
Við hvetjum þig til að skrá þig og finna ástina .... það kostar ekkert að skrá sig og allir geta prófað án nokkurra skuldbindinga. Ef þú vilt geta lesið og sent skilaboð getur þú keypt einn mánuð á aðeins 1.699 kr.
Skráðu þig núna !