Spurningar og svör

Hvað kostar að nota vefinn?

Það kostar ekkert að skrá sig og prófa, en ef þú vilt geta lesið og sent skilaboð getur þú keypt áskrift, t.d. einn mánuð á aðeins 1.399 kr, sjá nánar verðskrá.

Er hægt að takmarka sýnileika?

Vefurinn er lokaður, sem þýðir að einungis þeir sem eru skráðir notendur geta séð aðra notendur. Notendur velja fyrir hvaða aldurshóp þeir vilja vera sýnilegir. Þá er hægt að velja að vera sýnileg(ur) einungis vinum á Makaleit.is.

Hvernig lítur vefurinn út fyrir innskráðum?

Innskráðir notendur geta leitað eftir lífsförunaut, dæmi um leitarsíðu.

Hvað er auðkenndur notandi?

Það að vera merktur sem auðkenndur notandi á Makaleit.is þýðir að við höfum staðfest aldur og kyn notanda. Auðkenndir notendur öðlast meira traust frá öðrum notendum þar sem ekki er hægt að villa á sér heimilda.

Hvernig auðkennir Makaleit.is notendur?

Notandi gefur upp fæðingardag á síðunni "Auðkenning" undir "Aðgerðir" og millifærir 1 kr á bankareikning sem tilheyrir Makaleit.is. Við staðfestum að fæðingardagur sem kemur með millifærslunni sé sá sami og gefin var upp á Makaleit.is. Fæðingardagur er hvergi birtur á Makaleit.is og er eytt úr grunni að lokinni auðkenningu.

Hvað er persónuleikapörun?

Makaleit.is býður upp á sjálfvirka persónuleikapörun. Notendur geta valið að svara um 200 spurningum og fá þá að vita hversu vel þeir passa við aðra notendur. Spurt er um persónuleika, sýn á samböndum og áhugamál. Aðrir notendur fá auðvitað ekki að sjá svör þín við einstökum spurningum.

Fá aðrir notendur aðgang að netfanginu mínu

Nei. Netfangið er notað til að staðfesta notanda við skráningu og ef þú vilt fá tilkynningar sendar í pósti þegar notandinn þinn fær eitthvað sent inni á Makaleit.is, t.d. skilaboð eða vinabeiðni.

Er ég að missa af notendum ef ég fer ekki inn daglega?

Þú getur valið að fá sendan tölvupóst á netfangið þitt þegar notendur sem passa við þínar óskir nýskrá sig á Makaleit.is.

Geta aðrir notendur séð að ég hafi skoðað síðuna þeirra?

Nei.

Ég er að hitta mann sem ég kynntist á Makaleit.is og vil ekki vera lengur inni á vefnum

Þá er tilvalið að setja notandann þinn í bið. Það er gert neðst á síðunni "Mínar upplýsingar" undir "Aðgerðir". Þú munt þá ekki koma með í leitarniðurstöðum og allar þínar upplýsingarnar verða ósýnilegar.

Ég vil afskrá mig af Makaleit.is

Þú getur hvenær sem er eytt notandanum þínum og öllum upplýsingum. Það er gert neðst á síðunni "Mínar upplýsingar" undir "Aðgerðir".

Ég er með spurningu sem ég finn ekki svar við

Sendu okkur tölvupóst á makaleit@makaleit.is og við svörum þér innann 24 tíma.

Við hvetjum þig til að skrá þig og finna ástina .... það kostar ekkert að skrá sig og allir geta prófað án nokkurra skuldbindinga. Ef þú vilt geta lesið og sent skilaboð getur þú keypt einn mánuð á aðeins 1.399 kr.